BG Ísblástur sinnir fjölbreyttum hreinsiverkefnum fyrir fyrirtæki, stofnanir og fagaðila. Verkefnin eru ólík að umfangi, undirlagi og aðstæðum og því er hvert þeirra metið sérstaklega áður en vinna hefst.
Fjölbreytt verkefni í þurríshreinsun
Dæmi um verkefni BG Ísblásturs:
- Hreinsun bygginga eftir myglu- og rakaskemmdir
- Hreinsun eftir bruna, sót og önnur tjón
- Hreinsun vélarúma í skipum og smábátum
- Hreinsun túrbína og vélbúnaðar í orkuverum
- Hreinsun móta, rúlla og vélasamstæða í iðnaði
- Hreinsun búnaðar og framleiðslulína í prentsmiðjum
- Hreinsun í friðuðum og viðkvæmum byggingum
- Hreinsun í matvælaframleiðslu
- Hreinsun rafmagnsskápa og tæknibúnaðar
- Hreinsun vélasamstæða í þvottahúsum
- Tyggjóhreinsun af yfirborðum
- Hreinsun á kísli og öðrum iðnaðarbúnaði
Þurrísblástur getur hentað vel þegar draga þarf úr notkun vatns og hreinsiefna, komast að á erfiðum stöðum eða hreinsa viðkvæman búnað. Aðferðin getur einnig dregið úr þörf fyrir umfangsmikla sundurtöku, en rétt framkvæmd ræðst alltaf af yfirborði, mengun og aðstæðum á vinnustað.
Áður en verkefni hefst förum við yfir undirlag, aðgengi, nærliggjandi búnað og markmið verkkaupa. Þrýstingur, stútur og verklag eru síðan aðlöguð að verkefninu með það að markmiði að ná góðum hreinsunarárangri og halda röskun á starfsemi í lágmarki.
Hafðu samband við BG Ísblástur í síma 533 5000 eða sendu fyrirspurn á bensi@bgt.is til að fá frekari upplýsingar og mat á verkefninu.
