Hreinsiaðferðin hentar

einstaklega vel við hreinsun á

óhreinindum og mygluskemmdum

Þurrísblástur er öflug hreinsiaðferð fyrir valda íhluti, vélahluta og tæknibúnað í fluggeiranum. Aðferðin hentar sérstaklega vel þar sem ekki er æskilegt að nota vatn eða hefðbundin hreinsiefni. Þurrísinn gufar upp við hreinsunina og skilur því ekki eftir raka eða hreinsiefnaleifar, sem getur verið mikilvægt við hreinsun viðkvæmra yfirborða og búnaðar.

Í viðhaldsverkefnum getur aðferðin nýst til að fjarlægja olíu, fitu, ryk, sót og önnur óhreinindi af vélahlutum, hlífum, verkfærum og tæknibúnaði. Hún getur einnig hentað á stöðum þar sem aðgengi er takmarkað eða mikilvægt er að draga úr umfangi sundurtöku. Hvert verkefni er þó metið sérstaklega með tilliti til efnis, ástands og krafna verkkaupa.

Áður en hreinsun hefst skoðum við yfirborð, búnað og vinnuaðstæður og veljum síðan réttan þrýsting, stút og verklag. Framkvæmdin er aðlöguð að viðkomandi verkefni og unnin í samráði við ábyrgðaraðila eða viðhaldsdeild.

Markmiðið er að ná góðum hreinsunarárangri án þess að bæta við raka og með sem minnstri röskun á annarri starfsemi. BG Ísblástur leggur áherslu á vandaðan undirbúning, nákvæma framkvæmd og skýra upplýsingagjöf í öllum verkefnum.

Panta þjónustu

Hafðu samband